Safnaðarferð í Engey
Sunnudaginn 20. ágúst kl. 11
SAFNAÐARFERÐ FRESTAST
Sunnudaginn 20. ágúst er áætlað að fara í safnaðarferð út í Engey ef veður leyfir. Við ætlum að leggja upp frá Grandagarði 14 í Reykjavík, þar sem Björgunarsveitin Ársæll hefur björgunarskipið sitt.
Áætlað er að sigla frá landi kl. 11 með björgunarskipinu og út að Engey, þar sem fólk fer um borð í slöngubát til að komast í land. Björgunarsveitarmenn munu aðstoða fólk til að komast í slöngubátinn og úr honum. Fólk þarf að mæta í stígvélum og regnfatnaði.
Organisti Seltjarnarneskirkju mun koma með harmónikkuna. Áætlað er að hafa helgistund í eyjunni þar sem sóknarprestur flytur stutta hugleiðingu.
Engey var í lögsagnarumdæmi Seltjarnarness til ársins 1974. Vitinn í Engey blasir við úr safnaðarsal Seltjarnarneskirkju. Segja má, að Seltjarnarneskirkja og vitinn í Engey kallist á. Svo stutt er loftlínan á milli þessara bygginga.
Fólk þarf að skrá sig í ferðina og hringja í síma 899-6979 í síðasta lagi laugardaginn 19. ágúst.
Ferðin kostar krónur eitt þúsund fyrir fullorðna og krónur fimm hundruð fyrir börn. Eftir helgistundina er öllum boðið upp á samlokur og drykk.
Ef veður verður vont og ekki hægt að sigla út í Engey verður guðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju kl. 11.