Sunnudagurinn 25. nóvember

Fræðslumorgunn kl. 10

Svana Helen Björnsdóttir, verkfræðingur, spjallar um kirkjuna og skipulag hennar og lítur um öxl  á síðasta sunnudegi kirkjuársins. 

Messa og sunnudagaskóli kl. 11

Sóknarprestur þjónar. Organisti er Glúmur Gylfason og leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. 

Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu

Sunnudagurinn 18. nóvember

Fræðslumorgunn kl. 10

Núvitund. Guðni Kolbeinsson, þýðandi, segir frá bók 

Chade-Meng Tan um núvitund sem hann þýddi.

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11

Sóknarprestur þjónar og organisti kirkjunnar leikur á orgelið.

Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann og félagar úr Kammerkórnum syngja.

Kaffiveitingar og samfélag í safnaðarheimilinu eftir athöfn.

Sunnudagurinn 11. nóvember

Fræðslumorgunn kl. 10

Altaristöflur og íslenskir málarar.

Sr. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir talar.

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11

veggteppiSr. Ása Laufey Sæmundsdóttir þjónar.

Friðrik Vignir Stefánsson er organist.

Félagar úr Kammerkórnum syngja.

Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann.

Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu.