Helgihald

seltjarnarneskirkja sumar

Allt helgihald fellur niður eftirfarandi sunnudaga í júlí og ágúst vegna viðgerða á kirkjunni: 9., 16., 23. og 30. júlí og 6. ágúst.

Kirkjan opnar aftur þriðjudaginn 8. ágúst.

Guðsþjónusta verður í kirkjunni sunnudaginn 13. ágúst kl. 11.

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní

Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.

islenskifaninn

Prestur er sr. Bjarni Þór Bjarnason. Svana Helen Björnsdóttir, verkfræðingur, flytur ræðu.

Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Axel Björnsson og Hrefna Kristmannsdóttir lesa ritningarlestra.

Rótarýmenn taka þátt í athöfninni. Þjóðhátíðarkaffi í boði Rótarýklúbbs Seltjarnarness.


Sunnudagurinn 18. júní 

Helgistund á Lyfjafræðisafninu í Nesi kl. 11. Sóknarprestur þjónar og organisti mætir með harmónikkuna. Létt stund fyrir alla fjölskylduna. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn.


Sunnudagurinn 2. júlí

Fermingarmessa kl. 11. Sr. Ragnheiður Karitas Pétursdóttir og sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir prestar íslenska safnaðarins í Noregi ferma börn sem eru búsett í Noregi. Organisti er Glúmur Gylfason.


 

Guðsþjónusta á sjómannadaginn 11. júní 2017

 sjomannadagurinn

Guðsþjónustan hefst kl. 11. Prestur er sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti er Bjarni Þór Jónatansson. Guðrún Lóa Jónsdóttir leiðir almennan safnaðarsöng. Kaffi og terta í boði Nesskips eftir athöfn.

Komum og gleðjumst saman á sjómannadaginn.