21. október

Birt í Orð til umhugsunar

,,Segðu mér, hvað vegur eitt snjókorn?” spurði þrösturinn dúfuna.
,,Minna en ekki neitt,” svaraði dúfan.
,,Þá verð ég að segja þér sögu,” sagði þrösturinn.
,,Ég sat á bjarkargrein, þétt við stofninn þegar það fór að snjóa. Það var enginn bylur, nei, bara logndrífa, eitt og eitt snjókorn leið af himni, hljóðlega og fyrirhafnarlaust. Og þar sem ég hafði ekkert betra að gera fór ég að telja snjókornin sem féllu á greinina mína og sátu þar eftir.
Og þegar þrjúmilljónsjöhundruðfjörutíuogeittþúsundníuhundruðfimmtugasta og fjórða kornið féll, brotnaði greinin.”  Við það flaug fuglinn burt.
Dúfan sem var allt frá dögum Nóa sérfræðingur í þessum málum, sagði hugsandi við sjálfa sig: ,,Ef til vill vantar aðeins eina mannsrödd til að það verði friður á jörð?”
(Úr þýsku)
 
(Heimild: Orð í gleði)