24. september

Birt í Orð til umhugsunar

Þegar þú skilur ekki, vittu að Guð hefur svarið. Ef lífið er allt í einu bjartara og þú sérð vonargeisla, vittu að Guð hefur hvíslað að þér. Þegar allt gengur þér í hag og margt er að
þakka, vittu að Guð hefur blessað þig. Þegar eitthvað undursamlegt gerist og þú fyllist undrun, vittu þá að Guð hefur brosað til þín. Þegar þú átt draum að fylgja og markmið að ná, vittu að Guð hefur opnað augun þín og kallað þig með nafni. Hvers sem þú ert og hverju sem þú mætir. Guð veit. (Alltid elskad)
,,Yðar himneski faðir veit...” (Matt. 6.32)
(Heimild: Orð í gleði)