18. september

Birt í Orð til umhugsunar

,,Góður er Drottinn þeim er á hann vona, og þeirri sál, er til hans leitar. Gott er að bíða hljóður eftir hjálp Drottins.” (Harmljóðin 3)

Ekki er það með opnum augum sem maður sér best. Þú værir snauður ef þú hefðir ekki uppgötvað það. Þögn þín getur rúmað meir en ótal orð. Þú værir fávís ef þú vissir það ekki. Með spenntar greipar færðu meir áorkað en með gripi sem jafnvel gerir það eitt að særa. Þú værir allsvana ef þú vissir það ekki. (Helder Camara)

(Heimild: Orð í gleði)