Ritningarvers fyrir fermingardaginn!

Hér koma nokkrar tillögur að ritningarversum fyrir fermingardaginn.  Að sjálfsögðu er í lagi að velja vers úr Biblíunni sem ekki er á þessum lista.


 

Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum
vegum þínum.
Sálm. 91:11
Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði
mig um slétta braut..
Sálm. 143:10
Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.
Sálm. 145:8
Guð fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein.
Sálm. 103:3
Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.
Matt. 5:7
Því að ég, Drottinn, Guð þinn, held í hægri hönd þína og segi við þig:
Óttast þú eigi, ég hjálpa þér!
Jesaja 41:13
Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar.
Sálm. 121:5
Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa
óhultan í náðum.
Sálm. 4:9
Biðjið, og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður
mun upp lokið verða.
Matt. 7:7
Jesús sagði: ≥Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og
ég mun veita yður hvíld.
Matt. 11:28
Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu
saddir verða.
Matt 5:6
Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá.
Sálm. 34:8
Drottinn er trúfastur í öllum orðum sínum og miskunnsamur í öllum verkum
sínum.
Sálm. 145:13b
Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni
til kyns.       Sálm. 100:5
Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
Matt. 5:8
Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.
 Matt. 5:9
Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa.
Jesaja 40:29
Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann meðan hann er
nálægur!
Jesaja 55:6
Allt sem þið viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.
Þetta er lögmálið og spámennirnir.
 Matt. 7:12
En þeir sögðu: Trú þú á Drottin Jesú, og þú munt verða hólpinn og heimili
þitt.
Post. 16:31
Og hann sagði við alla: ≥Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki
kross sinn daglega og fylgi mér.
Lúk. 9:23
Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver
sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
 Jóh. 3:16
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir
sauðina.
Jóh. 10:11
Jesús mælti:  Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt
hann deyi.
Jóh. 11:25
Jesús segir við hann:  Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur
til föðurins, nema fyrir mig.
Jóh. 14:6
Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín.
Jóh. 14:15
Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það, sem ég býð yður.
Jóh. 15:14
Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.
Heb. 13:8
Vér vitum, að þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs, þeim sem
kallaðir eru samkvæmt ákvörðun Guðs.
 Róm. 8:28
Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
1.Mós. 1:1    
Því að ég þekki þær fyrirætlanir,
sem ég hefi í hyggju með yður - segir Drottinn - fyrirætlanir til heilla, en
ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.
Jer. 29:11
Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann
fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.
1.Jóh. 1:9      
Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát
mig ganga í sannleika þínum,
gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
Sálm. 86:11
Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir.
 Fil. 4:13
Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi mínum.
 Sálm. 119:105
Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna.
Sálm. 17:8
Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.
Sálm. 16:1
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.
Sálm. 23:1
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá
mér, sproti þinn og stafur hugga mig.
Sálm. 23:4
Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!
Sálm 31:6
Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.
Sálm. 37:5
Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.
Sálm. 46:2
Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.
Sálm. 51:12
Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.
Sálm. 121:2
Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína.
Sálm. 121:7
Óttast þú eigi, því að ég er með þér. Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn
Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með hægri hendi réttlætis
míns.
 Jes. 41:10