Sunnudagurinn 2. september

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.

Sigurður Óskar Óskarsson, nýráðinn æskulýðsfulltrúi Seltjarnarneskirkju 
ásamt leiðtogum sjá um sunnudagaskólann sem hefst að nýju að loknu 
sumarleyfi.

Guðsþjónusta sunnudagsins er græn vegna þess að kirkjan er í græna 
hverfinu á bæjarhátíðinni. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, 
þjónar.  Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkórnum 
syngja. Grænar veitingar í safnaðarheimili að lokinni athöfn.

Laugardagurinn 1. september

Stund í Albertsbúð í Gróttu kl. 14.30

albertsbud

Friðrik Vignir Sefánsson leikur á harmónikku og sr. Bjarni Þór Bjarnason 
spjallar um lífið og tilveruna á milli laga sem allir þekkja.

Sunnudagurinn 26. ágúst

Messa kl. 11

Sr. Sigurbjarnar Einarssonar, biskups, minnst. Tíu ár liðin frá láti hans.

hrkarlbiskupSr. Karl Sigurbjörnsson, biskup, prédikar.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar fyrir altari.
Steinununn Vala Pálsdóttir, flautuleikari leikur lag.
Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari, leikur lag.
Guðmundur Ari Sigurjónsson og Rannveig Karlsdóttir lesa ritningarlestra.
Friðrik Vignir Stefánsson er organisti.
Félagar úr Kammerkórnum syngja.
Allir sálmar messunnar eru eftir sr. Sigurbjörn.
Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimili kirkjunnar.

Sýning á bókum sr. Sigurbjarnar í anddyri kirkjunnar.