Lionsguðsþjónusta 28. apríl – höfðingleg gjöf

Sunnudaginn 28. apríl var guðsþjónusta og sunnudagaskóli í Seltjarnarneskirkju að venju kl. 11.

Lionsmenn tóku þátt í athöfninni. Ægir Ólason og Gunnar Pálsson lásu ritningarlestra. Örn Johnson las bænir og Guðjón Jónsson las lokabæn. 

Selkórinn söng í guðsþjónustunni undir stjórn Oliver Kentish. Organisti var Bjarni Þór Jónatansson.

Bragi Ólafsson,formaður Lionsklúbbs Seltjarnarness færði söfnuði Seltjarnarneskirkju 250 sálmabækur að gjöf, er Guðmundur Einarsson, formaður sóknarnefndar, tók við,  fyrir hönd safnaðarins.

Við þökkum innilega fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Um er að ræða nýjar sálmabækur sem eru sérmerktar nafni kirkju og gefenda. Guðmundur afhenti af þessu tilefni Braga þakkarskjal sem er undirritað af sóknarpresti og formanni sóknarnefndar. Lionsmenn buðu öllum viðstöddum að þiggja glæsilegar veitingar í safnaðarsal Seltjarnarneskirkju að athöfn lokinni. Hafi þeir bestu þakkir fyrir það.

Vel heppnuð safnaðarferð í Skagafjörð

 

Hún var vel heppnuð safnaðarferðin í Skagafjörð dagana 20.-21. apríl síðastliðinn. Rúmlega 30 manns fóru í ferðina.

Haldið var af stað frá Seltjarnarneskirkju kl. 9 á laugardagsmorgni. Hilmar Hilmarsson ók hópnum á lúxusrútu sinni. Hilmar er Skagfirðingur og var sláturhússtjóri á Sauðárkróki á árum áður. Guðmundur Einarsson, formaður sóknarnefndar sagði hópunum frá ýmsu er tengdist Borgarfirði.  Hópurinn áði í Staðarskála í Hrútafirði. Að því loknu var ekið í blíðskaparverði í Skagafjörðinn þar sem sr. María Ágústsdóttir sagði æsku sinni í firðinum.  Komið var við á Víðimýri og hin fagra torfkirkja skoðuð.

Fjölmenn fermingarmessa

 

Myndir frá fjölmennri fermingarmessu í Seltjarnarneskirkju 14. apríl kl. 13.30. Alls fermdust 14 unglingar. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, fermdi. Friðrik Vignir Stefánsson, organisti þjónaði ásamt félögum úr Kammerkór kirkjunnar. 230 manns voru við athöfnina.