Sunnudagurinn 23. apríl
Fræðslumorgunn kl. 10
Jón Eiríksson landsfaðir á átjándu öld.Hrafn Sveinbjarnarson, sagnfræðingur og héraðsskjalavörður, talar.
Tónlistarguðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11
Tónlistarguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju. Þar mun allur Kammerkór Seltjarnarneskirkju koma fram í messunni og flytja kórtónlist frá hinum ýmsu tímabilum, barrokk, rómantík og nútíma og eru sum þeirra frumflutningur hér á Íslandi. Þessi kórverk eru eftir bæði erlend og íslensk tónskáld. Kammerkórinn mun svo flytja þessa kórtónlist aftur ásamt öðrum kórverkum á Vortónleikum sem verða miðvikudaginn 24. maí n.k.
Sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti.
Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
Aðalsafnaðarfundur kl. 12.15.