Sunnudagurinn 5. janúar 2014

Kántríguðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11

kantri 
Hljómsveitin Vinir Axels leika og spila.
Guðbjörg Hilmarsdóttir syngur einsöng.
Sóknarprestur þjónar.
Kaffiveitingar í anda Villta vestursins.
Þeir sem eiga kúrekafatnað mæti endilega í honum, eins og til dæmis kúrekahatta og  kúrekastígvél.
Hittumst hress í kirkjunni á fyrsta sunnudegi ársins.

Helgihald um jól og áramót

helgileikur 

22. desember

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Selkórinn syngur undir stjórn Oliver Kentish. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Nokkrir textar Sigurðar Björnssonar, verkfræðings, sungnir. Jón Karl Einarsson, kórstjóri, heiðraður í lok athafnar.  Kaffiveitingar. 

23. desember

Organisti leikur á orgelið á Þorláksmessukvöldi kl. 22-23 jólatónlist og jólasálma við kertaljós. Eygló Rúnarsdóttir syngur einsöng.  


24. desember

Aftansöngur kl. 18. Sóknarprestur, organisti kirkjunnar og Kammerkórinn. Guðrún Helga Stefánsdóttir syngur einsöng. 

Miðnæturguðsþjónusta kl. 23.30. Sóknarprestur, organisti kirkjunnar og Kór Menntaskólans í Reykjavík syngur.


25. desember

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar. Organisti kirkjunnar og Kammerkórinn. Þóra H. Passauer syngur einsöng.


 26. desember

Helgistund í tilefni af Kirkjuhlaupi kl. 10 árdegis. Sóknarprestur þjónar ásamt organista.


29. desember

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar. Organisti og Kammerkór. Kaffiveitingar.


31. desember 

Heitt súkkulaði og piparkökur kl. 20.30 – kl. 22. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið áramótalög.

Þeir sem koma af eða fara á brennu geta komið við í kirkjunni, hlýjað sér og fengið hressingu.


 1. janúar 

Hátíðarguðsþjónusta. Sóknarprestur þjónar ásamt organista. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar syngja. Ræðumaður er Brynjar Níelsson, alþingismaður. Sigurlaug Arnardóttir syngur einsöng.


5. janúar 

Kántríguðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Hljómsveitin Vinir Axels syngja.  Sóknarprestur þjónar. Kaffiveitingar.

Sunnudagurinn 22. desember

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl 11

 

Selkórinn syngur undir stjórn Oliver Kentish Jólalög sungin við texta Sigurðar Björnssonar, verkfræðings

Fjórða kertið á aðventukransinum tendrað

Sunnudagaskólinn á neðri hæð kirkjunnar

Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar

Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson

Jón Karl Einarsson, kórsstjóri, heiðraður fyrir störf sín

Kaffiveitingar