Fimmtudagurinn 1. maí
Vori fagnað
Stutt helgistund á Gróttudegi í Albertsbúð í Gróttu kl. 12.30.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur þjónar.
Magnús Ragnarsson spilar á hljómborð.
Sumarsöngvar og sumarsálmar sungnir.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur tónleika undir yfirskriftinni „Dýrðartónar“ Tónleikarnir eru í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og verða haldnir í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 26. apríl klukkan 17.00. Auk hljómsveitar og kórs koma fram tíu einsöngvarar og eru átta þeirra eru úr röðum kórfélaga. Orgelleikari er Kári Þormar og stjórnandi kórsins er Friðrik Vignir Stefánsson organisti Seltjarnarneskirkju.