Sjálfboðaliðar hafa komið að kirkjustarfi alla tíð. Eftir því sem að starf kirkjunnar verður fjölbreyttara er enn meiri þörf fyrir sjálfboðaliða. Við leitum nú til Seltirninga, til þess að aðstoða við helgihaldið á sunnudögum og í barna og æskulýðsstarfinu.
Störfin eru margskonar og bindingin er ekki mikil en messan fer kannski að tala á annan hátt til þín en hún hefur gert fram til þessa ef fleiri koma að starfinu. Þú leggur þitt af mörkum við að gera hana meira lifandi. Í stað þess að messan sé borin uppi af presti, kirkjuverði, organista og kór, þá er hópur fólks fenginn til verksins. Margt verður í boði svo sem bænahópur, lestur inn og útgöngubænar, lestur ritningarlestra og annað er snýr að undirbúningi fyrir hverja messu.
Er eitthvað sem þú gætir hugsað þér fyrir kirkjuna þína eða fólkið í sókninni? Störf eru til við allra hæfi, líka þeirra sem eru á unglingsaldri. Ef þú vilt verða safnaðarþjónn hafðu endilega samband við starfsfólk kirkjunnar í síma 561-1550 eða á netfangið: srbjarni@seltjarnarneskirkja.is.