Fræðslumorgunn kl. 10 Af trúmálum í fyrstu bók Gröndals. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu í Reykholti, talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn. Miðvikudagurinn 11. nóvember kl. 9 árdegis Þjóðmálafundur og […]
Fulltrúar frá Arion banka koma til okkar á þjóðmálafundinn n.k. miðvikudag, 4. nóvember. Þeir munu ræða við okkur um netsvik. Fundurinn hefst kl. 9:00. Allir velkomnir.
Fræðslumorgunn kl. 10. Von að láni. Lífsreynslusögur samferðafólks. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og sálgæsluþjónustu kirkjunnar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11 Allraheilagramessa. Látinna minnst. Sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Allur kammerkórinn syngur. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
Svavar G. Svavarsson öryggissérfræðingur kemur á þjóðmálafundinn n.k. miðvikudag og spjallar við okkur um gervigreind, kosti hennar og galla. Fundurinn hefst kl 9:00. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Fræðslumorgunn kl. 10 Lútherskir biskupar á Íslandi. Glúmur Gylfason, organisti, talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11 Sóknarprestur þjónar. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu. Á þriðjudag 27. október er máltíð eldri borgara kl. 12. Kótelettuhátíð. Sigurður Jón Ólafsson les eigin ljóð. […]
Næsti eldri borgara dagur í kirkjunni verður n.k. þriðjudag 27. október 2026. Kótelettur með öllu tilheyrandi frá Múlakaffi. Verð kr. 3.500. Hefst kl. 12:00 stundvíslega. Sigurður Jón Ólafsson flytur eigin ljóð eftir matinn. Skráning í kirkjunni, á Skólabraut og hjá kirkjuverði í síma 896-7800.
Gunnhildur Skaftadóttir landfræðingur verður gestur okkar á þjóðmálafundi miðvikudaginn 21. október 2026. Gunnhildur ætlar að segja okkur í máli og myndum frá ferð sinni til Kirgistan. Fundurinn hefst kl 9:00. Allir velkomnir.
Sigríður Á. Andersen alþingismaður Miðflokksins kemur til okkar í kirkjuna miðvikudaginn 14. október n.k. og spjallar við okkur um málefni líðandi stundar. Fundurinn hefst kl. 9:00. Allir velkomnir. Kaffiveitingar.
Fræðslumorgunn kl. 10 Heilagur Frans frá Assisi. Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, héraðsprestur, talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11 Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu
Meðfylgjandi er dagskrá barna- og æskulýðsstarfsins í kirkjunni í vetur. Við hvetjum foreldra til þess að koma með börnin sín og leyfa þeim að taka þátt í starfi kirkjunnar.






