Næsti eldri borgara dagur í kirkjunni verður n.k. þriðjudag 27. október 2026. Kótelettur með öllu tilheyrandi frá Múlakaffi. Verð kr. 3.500. Hefst kl. 12:00 stundvíslega. Sigurður Jón Ólafsson flytur eigin ljóð eftir matinn. Skráning í kirkjunni, á Skólabraut og hjá kirkjuverði í síma 896-7800.
Monthly Archives: október 2026
Gunnhildur Skaftadóttir landfræðingur verður gestur okkar á þjóðmálafundi miðvikudaginn 21. október 2026. Gunnhildur ætlar að segja okkur í máli og myndum frá ferð sinni til Kirgistan. Fundurinn hefst kl 9:00. Allir velkomnir.
Sigríður Á. Andersen alþingismaður Miðflokksins kemur til okkar í kirkjuna miðvikudaginn 14. október n.k. og spjallar við okkur um málefni líðandi stundar. Fundurinn hefst kl. 9:00. Allir velkomnir. Kaffiveitingar.
Fræðslumorgunn kl. 10 Heilagur Frans frá Assisi. Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, héraðsprestur, talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11 Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu
Meðfylgjandi er dagskrá barna- og æskulýðsstarfsins í kirkjunni í vetur. Við hvetjum foreldra til þess að koma með börnin sín og leyfa þeim að taka þátt í starfi kirkjunnar.
Fræðslumorgunn kl. 10 Hólabiskupar í lútherskum sið. Glúmur Gylfason, organisti, talar. Uppskerumessa og sunnudagaskóli kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Kaffiveitingar eftir athöfn og grænmetismarkaður til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar innanlandsaðstoð.
Sunnudaginn 4. október 2026, kl. 13 verður gæludýrablessun í Seltjarnarneskirkju. Gæludýrin eru vinir okkar og eiga svo sannarlega skilið að fá blessun líkt og við mannfólkið. Löng hefð er fyrir því í kristinni kirkju að blessa dýrin okkar. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar í þessari athöfn. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju […]







