Gunnhildur Skaftadóttir landfræðingur kemur á þjóðmálafundinn okkar n.k. miðvikudag og segir frá ferð sinni til Suður-Afríku. Fundurinn hefst að vanda kl. 9:00. Kaffi og meðððí. Allir velkomnir.
Category Archives: Fréttir
Fræðslumorgunn kl. 10. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, fyrrum Hólabiskup, rifjar upp fyrstu árin í starfi safnaðarins á neðri hæð Seltjarnarneskirkju. Messa á sjómannadag kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir prédikar. 40 ár liðin frá því að hún var valin sóknarprestur í almennum prestskosningum í Seltjarnarnesprestakalli. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. […]
Fræðslumorgunn kl. 10 Svo á Jörðu sem á himni Dr. Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor hjá Árnastofnun, talar Messa kl. 11 Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir, prófastur, þjónar Friðrik Vignir Stefánsson er organisti Ólöf Ingólfsdóttir er forsöngvari Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu
Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri verður gestur okkar á þjóðmálafundi n.k. miðvikudag. Þór ræðir úrslit kosninganna og það sem framundan er. Fundurinn hefst kl. 9:00. Kaffi og meððððí. Allir velkomnir.
Hátíðarmessa kl. 11 Sr. Kristín Pálsdóttir, prestur heyrnarlausra, þjónar Friðrik Vignir Stefánsson er organisti Félagar úr Kammerkórnum syngja Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur á þjóðmálafundi Páll kemur til okkar á þjóðmálafundinn í fyrramálið 20. maí 2026 og ræðir m.a. um stöðuna á Reykjanesi. Fundurinn hefst kl. 9:00. Kaffi og meðððí. Allir velkomnir.






