Sunnudagurinn 25. október 2026

Fræðslumorgunn kl. 10

Lútherskir biskupar á Íslandi. Glúmur Gylfason, organisti, talar.

Messa og sunnudagaskóli kl. 11

Sóknarprestur þjónar. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja.

Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu.

Á þriðjudag 27. október er máltíð eldri borgara kl. 12. Kótelettuhátíð. Sigurður Jón Ólafsson les eigin ljóð. Skráning í síma 896-7800.

Á miðvikudag  28. október er þjóðmálafundur kl. 9. Svavar G Svavarsson, öryggissérfræðingur, spjallar um gervigreind, kosti og galla.