Frosti Sigurjónsson fyrrverrandi alþingismaður verður gestur okkar í fyrramálið á þjóðmálafundi. Fundurinn hefst kl. 9:00 og er öllum opinn. Kaffi og meððððí.
Monthly Archives: september 2026
Fræðslumorgunn kl. 10 ,,Hagur heildarinnar og hugarfar samúðar”. Séra Björn Magnússon á Borg, síðar prófessor. Dr. María Guðrúnar Ágústsdóttir, prófastur, talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir messu í safnaðarheimilinu.
Eldri borgara dagur í safnaðarheimilinu þriðjudaginn 29. september n.k. og hefst hann kl. 12:00. Hakkabuff með lauk og eggi og öðru tilheyrandi. Verð kr. 3.000. Skráning í kirkjunni, á Skólabraut og hjá kirkjuverði í síma 896-7800. Allir velkomnir.
Guðmundur Ari Sigurjónsson alþingismaður verður gestur okkar í kirkjunni á þjóðmálaafundi miðvikudaginn 23. september n.k. Fundurinn hefst kl. 9. Kaffi og meððððí. Allir velkomnir.
Fræðslumorgunn kl. 10 Saga Flateyjarkirkju á Breiðafirði. Sigfús Jónsson, land- og sagnfræðingur, talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Hljómfélagið syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn
Halla Hrund Logadóttir alþingismaður verður gestur okkar í fyrramálið, vegna forfalla Sigríðar Á Andersen. Fundurinn hefst kl 9:00. Kaffiveitingar. Kyrrðarstundir hefjast aftur á miðvikudaginn, kl. 12:00.
Fræðslumorgunn kl. 10 Þrjú málverk í Nesi við Seltjörn – skjaldfræðilegur misskilningur Halldór Baldursson, læknir og sagnfræðingur, talar Léttmessa og sunnudagaskóli kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Hljómsveitin Sóló leikur og syngur. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn.
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins verður gestur okkar í kirkjunni á þjóðmálafundinum n.k. miðvikudag. Fundurinn hefst kl 9:00. Kaffi og meððððí. Allir velkomnir.
Fræðslumorgunn kl. 10 Kristniboðskóngarnir og skáldin þeirra – um ríkulegan skáldskap Bergsbókar. Dr. Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar og prófessor við Háskóla Íslands, talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Veitingar í safnaðarheimili eftir athöfn.









