Category Archives: Óflokkað

Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna 18. október n.k.

Sinfóníuhljómsveit áhugamanna heldur tónleika í Seltjarnarneskirkju 18. október n.k kl. 16:00. Efnisskrá þessa fyrstu tónleika starfsársins: Sellókonsert í e moll opus 85 eftir Edward Elgar, Hrímhvíta móðir – nýtt verk eftir Oliver Kentish og Sinfónía nr. 4 í d moll opus 120 eftir Robert Schumann Miðasala á tix.is en nemendur og eldri borgarar geta keypt […]

Sunnudagurinn 27. október 2024

Fræðslumorgunn kl. 10 Biblían í verkum Laxness. Dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur emeritus, talar Messa og sunnudgaskóli kl. 11 Sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkórnum syngja Kaffi og kökur eftir athöfn í safnaðarheimilinu.

Kótelettudagur eldri borgara 24. september kl. 11:30

Kótelettudagur eldri borgara í safnaðarheimilinu þriðjudaginn 24. september n.k. og hefst kl. 11:30. Athugið nýr tími. Gestir koma og kynna Osteo strong kerfið, sem er gott fyrir vöðva, liðamót og bein. Maturinn kostar kr. 3.500 og kemur frá Múlakaffi. Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst á eyðublöðum í kirkjunni eða hjá kirkjuverði í síma 896-7800.

Mugison með tónleika í Seltjarnarneskirkju

Mugison verður með tónleika í Seltjarnarneskirkju föstudaginn 20. september n.k. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og standa í um klukkustund. Miðaverð er kr. 4.500 í forsölu á tix.is og kr. 5.000 við innganginn. Við hvetjum Seltirninga til þess að mæta í kirkjuna og hlusta á Mugison.

Sunnudagurinn 8. september 2024

Fræðslumorgunn kl. 10 Guðrún Ágústsdóttir, hópstjóri, rifjar upp minningar um afa sinn og ömmu, sr. Bjarna Jónsson og frú Áslaugu Ágústsdóttur. Guðsþjónusta kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu