Sunnudagurinn 20. september 2026

Fræðslumorgunn kl. 10 Saga Flateyjarkirkju á Breiðafirði. Sigfús Jónsson, land- og sagnfræðingur, talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Hljómfélagið syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn

Halla Hrund Logadóttir á þjóðmálafundi 16. september 2026

Halla Hrund Logadóttir alþingismaður verður gestur okkar í fyrramálið, vegna forfalla Sigríðar Á Andersen. Fundurinn hefst kl 9:00. Kaffiveitingar. Kyrrðarstundir hefjast aftur á miðvikudaginn, kl. 12:00.

Sunnudagurinn 13. september 2026

Fræðslumorgunn kl. 10 Þrjú málverk í Nesi við Seltjörn – skjaldfræðilegur misskilningur Halldór Baldursson, læknir og sagnfræðingur, talar Léttmessa og sunnudagaskóli kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Hljómsveitin Sóló leikur og syngur. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn.

Sunnudagurinn 6. september 2026

Fræðslumorgunn kl. 10 Kristniboðskóngarnir og skáldin þeirra – um ríkulegan skáldskap Bergsbókar. Dr. Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar og prófessor við Háskóla Íslands, talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Veitingar í safnaðarheimili eftir athöfn.

Guðni Ágústsson á þjóðmálafundi miðvikudaginn 2. september 2026

Guðni Ágústsson, formaður Njálufélagsins, verður gestur okkar á miðvikudaginn, 2. september kl 9:00. Guðni kynnir nýja og glæsilega myndskreytta viðhafnarútgáfu BRENNUNJÁLS sögu sem kemur út fyrir jólin. Þeir sem kaupa bókina á sérstökum vildarkjörum í forsölu fá nafnið sitt skráð á heillaóskalista (Tabula Gratulatoria) á titilsíðum hennar. Guðni rennir sér svo áByggilega í alls kyns […]

Sunnudagurinn 30. ágúst 2026

Fræðslumorgunn kl. 10 Hafsteinn Einarsson útvarpsstjóri Lindarinnar kynnir starfsemi stöðvarinnar. Messa kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar syngja. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn.