18. nóvember

Birt í Orð til umhugsunar

Vegsama Guð með sjón sem er næm á það sem gott er, með hreinum hugsunum og höndum sem eru fúsar að gjöra gott.
Líttu oft til Guðs í dagsins önnum og hvíld. Andvarpa til Guðs, bið til Guðs. Segðu: ,,Drottinn Jesús Kristur, Guðs sonur, miskunna þú mér! Öll mín hugsun, öll mín orð, Jesús, gleðji þig. Vísa mér veg þinn, Drottinn, gjör mig fúsan að fara hann.”
(Lönnebo)
(Heimild: Orð í gleði)