Vormisseri 2015

Fræðslumorgnar í Seltjarnarneskirkju

 Í ár eru liðin 200 ár frá stofnun Hins íslenska Biblífélags, elsta starfandi félags á landinu. Það var stofnað 10. júli 1815 á heimili Geirs Vídalíns, biskups, Seltirningsins góðkunna, í Aðalstræti 10.
 
Seltjarnarnessókn stendur fyrir þessum fræðslumorgnum í tilefni af afmælisári Biblíufélagsins. Eftirfarandi fyrirlestrar fjalla um Biblíuna frá ýmsum sjónarhornum.  
 
Fræðslumorgnar eru á neðri hæð Seltjarnarneskirkju á sunnudögum kl.  10-10.45

Febrúar

1. Áhrif Biblíunnar í verkum mínum. Kristín Gunnlaugsdóttir, myndlistarmaður.

8. Biblían og tónlistin. Margrét Bóasdóttir, verkefnisstjóri kirkjutónlistar, flytur/fjallar um efnið í tali og tónum.

15. Áhrif Biblíunnar á íslenskt mál. Jón G. Friðjónsson, prófessor.

22. Áhrif Biblíunnar í ritverkum mínum. Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og fyrrverandi forseti Alþingis.

Mars

1. Biblían og Lúther. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur.

8. Áhrifasaga Saltarans – Davíðssálmar í sögu og samtíð. Dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor.