Þú mikill ert!

Þú mikill ert!
Ó, Drottinn Guð, ég lofa dásemd þína
How great thou art!
 
 
Þú mikill ert er sálmur byggður á sænskum sálmi eftir sálmaskáldið og trúboðann Carl Gustav Boberg (1859-1940)  När tryckt av synd och skuld jag faller neder,sem hann samdi árið 1885. Lagið er sænskt þjóðlag. Þessi sálmur var þýddur og endursaminn af breska trúboðanum Stuart K. Hine  (1899-1989). O Lord my God, when I in awesome wonder, sem oftast er nefndur eftir viðlaginu: How Great thou art.
 
Sálmurinn er þýddur að beiðni séra Bjarna Þórs Þjarnasonar. Þýðingin er tileinkuð Seltjarnarneskirkju í tilefni af 25 ára vígsluafmæli kirkjunnar 18. febrúar 2014 
 
 
Ó, Drottinn Guð, ég lofa dásemd þína
sem dag hvern leggur þú í hendur mér.
Ég þakka lífið, vernd og vegferð mína
og vil í trú og auðmýkt fylgja þér. 
 
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
 
Ég horfi yfir það sem hönd þín gefur
og hugsa um það allt sem skapar þú.
Ég heyri þrumur, veit hvar sólin sefur,
og sé hve máttur þinn er nærri nú.
 
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
 
Af fjallsbrún horfi yfir fagra dali,
við fuglasöng og hljóðan vængjaslátt,
og lækjarnið  er ljúfur blærinn svali
þar lofar Drottins visku, náð og mátt.
 
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
 
Þá man ég hvað Guðs gæska varð að þreyja
er gaf sinn Son, sem byrðar mínar ber,
og synda minna vegna varð að deyja
en vekur mig til lífs á ný með sér.                    
 
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
 
Og svo um síðir, þegar Kristur kemur
og kallar mig og segir: Hjá mér vert, 
í auðmýkt lýt ég honum öllu fremur
og elsku hans: Ó, Guð, þú mikill ert!
 
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
Þá syngur Guð minn, sála mín til þín! 
Þú mikill ert! Þú mikill ert!
 
Kristján Valur Ingólfsson