Kaffihúsatónleikar Kammerkórsins n.k. fimmtudag

Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur kaffihúsatónleika í safnaðarheimili kirkjunnar fimmtudaginn 10. október n.k. og hefjast tónleikarnir kl. 20:00.

Á dagskránni verða lög úr ýmsum áttum við allra hæfi.  Verð aðgöngumiða er kr. 3.000.

Við hvetjum ykkur til þess að taka fimmtudaginn frá og koma í kirkjuna.
Stjórnandi er Friðrik Vignir Stefánsson.