Skírdagur 2. apríl kl. 18, máltíð og altarisganga

Á skírdagskvöld verður máltíð og altarisganga í Seltjarnarneskirkju kl. 18:00.   Dekkað borð inni í kirkjuskipinu.

Boðið verður upp á kalt lambalæri og gamaldags kartöflusalat með heitri sósu. Maturinn kemur frá Múlakaffi.  Verð kr. 3.400.

Bókanir í kirkjunni eða hjá kirkjuverði í síma 896-7800.  Allir velkomnir með húsrúm leyfir.