Category Archives: Eldri borgarar

Eldri borgara dagur á þriðjudaginn, ýsa í raspi

Mánaðarlegur eldri borgara dagur í kirkjunni verður n.k. þriðjudag kl. 12:30. Steikt ýsa í raspi með öllu tilheyrandi, frá Múlakaffi. Verð kr. 3.300. Vinsamlega skráið ykkur í kirkjunni eða hjá kirkjuverði í síma 896-7800, fyrir mánudag. Gestir frá Osteo Strong koma í heimsókn og fræða okkur um þeirra líkamsræktarkerfi.

Kótelettudagur eldri borgara 24. september kl. 11:30

Kótelettudagur eldri borgara í safnaðarheimilinu þriðjudaginn 24. september n.k. og hefst kl. 11:30. Athugið nýr tími. Gestir koma og kynna Osteo strong kerfið, sem er gott fyrir vöðva, liðamót og bein. Maturinn kostar kr. 3.500 og kemur frá Múlakaffi. Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst á eyðublöðum í kirkjunni eða hjá kirkjuverði í síma 896-7800.