Sunnudagurinn 4. maí 2025

Fræðslumorgun kl. 10

Sjáandi sálir: Um list og táknheim Einars Jónssonar, myndhöggvara. Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar og rannsókna hjá Listasafni Reykjavíkur, talar.

Messa og sunnudagaskóli kl. 11

Sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti.

Pálína Magnúsdóttir sér um sunnudagaskólann sem er sá síðasti á þessu vori.

Ásta Valdimarsdóttir fær söfnuðinn til að hlæja á alþjóðlegum hláturdegi. Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir leiðir almennan safnaðarsöng.

Pysluveisla í safnaðarheimilinu að lokinni athöfn.