23. desember kl. 22 – Þorláksmessa.
Orgeltónar og söngur við kertaljós. Friðrik Vignir Stefánsson organisti og Eygló Rúnarsdóttir söngkona flytja fagra tónlist í aðdraganda helgra jóla.
24. desember kl. 11 árdegis – aðfangadagur jóla. Helgistund á Hjúkrunarheimilinu Seltjörn. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Organisti er Glúmur Gylfason.
24. desember kl. 18 – aðfangadagur jóla. Aftansöngur.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir syngur einsöng. Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngur.
25. desember kl. 14 – jóladagur.
Hátíðarguðsþjónusta. Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson þjónar. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Salka Rún Sigurðardóttir syngur einsöng. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja.
Kaffi og konfekt eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
26. desember kl. 10 – annar dagur jóla.
Helgistund við upphaf Kirkjuhlaups. Boðið upp á heitt kakó og smákökur eftir hlaupið.
28. desember – sunnudagur – fjórði dagur jóla. – á milli jóla og nýárs.
Kl. 10:00 Fræðslumorgunn. Sveinn Gauti Einarsson, verkfræðingur, spjallar um björgunarsveitirnar og störf þeirra í tilefni af flugeldasölu þeirra.
Kl. 11:00 Messa á síðasta sunnudegi ársins 2025. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja.
Kaffiveitingar í safnaðarheimili eftir athöfn.
31. desember – Gamlársdagur
Heitt kakó í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju kl. 20.30 – 22.30
Fyrir fólk sem er að fara á brennu eða koma af brennu
Fyrsti janúar 2026 – Nýársdagur
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti.
Kristín Marja Baldursdóttir, rithöfundur, flytur hátíðarræðu.
Ólöf Ingólfsdóttir syngur einsöng. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja.
Kaffi og konfekt í safnaðarheimilinu eftir athöfn.
Sunnudagurinn 4. janúar 2026
Messa kl. 11
Sóknarprestur þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir leiðir almennan safnaðarsöng.
Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu

