Kammerkór Seltjarnarneskirkju ásamt hljóðfæraleikurum verða með tónleika sunnudaginn 17. maí kl. 16 í Seltjarnarneskirkju.
Á efnisskránni eru kórverk eftir m.a. Arvo Pärt, Ēriks Ešenvalds, Vytautas Miškinis og Johannes Brahms, auk verka eftir meðlimi Bach-fjölskyldunnar.
Rúsínan í pylsuendanum verða tvær mótettur eftir Johann Sebastian Bach: Lobet den Herrn (BWV 230) og Jesu, meine Freude (BWV 227).
Hljóðfæraleikarar:
Páll Einarsson selló, Kjartan Guðnason kontrabassi, Pétur Nói Stefánsson orgel.
Stjórnandi: Friðrik Vignir Stefánsson
Verð aðgöngumiða kr. 4500

