Category Archives: Fréttir

Mugison með tónleika í Seltjarnarneskirkju

Mugison verður með tónleika í Seltjarnarneskirkju föstudaginn 20. september n.k. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og standa í um klukkustund. Miðaverð er kr. 4.500 í forsölu á tix.is og kr. 5.000 við innganginn. Við hvetjum Seltirninga til þess að mæta í kirkjuna og hlusta á Mugison.

Guðrún Einarsdóttir sýnir á Veggnum Gallerýi

Nú stendur yfir sýning á þremur myndum eftir Guðrúnu Einarsdóttur á Veggnum Gallerýi í kirkjunni. Sýningin stendur út september 2024 og er opin á venjulegum viðverutíma starfsmanna. Guðrún Einarsdóttir er einn fremsti íslenski myndlistarmaður samtímans. Hún stundaði nám í málaradeild og fjöltæknideild Myndlista- og Handíðaskóla Íslands á 9. áratugnum, ásamt námskeiðum í efnafræði síðar á […]

Sumarsól – hádegistónleikar

Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzósópran heldur hádegistónleika í Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 27. ágúst n.k. ásamt Hallveigu Rúnarsdóttur sópran, Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara og Matthíasi Stefánssyni fiðluleikara. Tónleikarnir hefjast kl. 12:00. Miðar á tix.is

Sunnudagurinn 11. ágúst 2024

Guðsþjónusta kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar Friðrik Vignir Stefánsson er organisti Jóhann Helgason, tónlistarmaður, syngur, en hann fagnaði 75 ára afmæli sínu fyrir skömmu Tónlist eftir Jóhann verður flutt í guðsþjónustunni Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir syngur Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu

Aðalfundur safnaðarins

Aðalfundur safnaðarins var haldinn í gær. Sóknarnefnd Seltjarnarneskirkju starfsárið 2024 til 2025 er þannig skipuð: AÐALMENN: Guðmundur Einarsson, varaformaður, Víkurströnd 14, Seltjarnarnesi, Guðrún Brynjólfsdóttir, ritari, Eiðismýri 14a, Seltjarnarnesi, Gunnlaugur A. Jónsson, Bollagörðum 61, Seltjarnarnesi, Ólafur Ísleifsson, gjaldkeri, Melabraut 7, Seltjarnarnesi, Steinunn Einarsdóttir, Boðagranda 7, Reykjavík, Svana Helen Björnsdóttir, formaður, Kolbeinsmýri 14, Seltjarnarnesi og Þórleifur Jónsson, […]