Sunnudagurinn 4. október 2026, gæludýrablessun

Sunnudaginn 4. október 2026, kl. 13 verður gæludýrablessun í Seltjarnarneskirkju.

Gæludýrin eru vinir okkar og eiga svo sannarlega skilið að fá blessun líkt og við mannfólkið.

Löng hefð er fyrir því í kristinni kirkju að blessa dýrin okkar.

Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur,  þjónar í þessari athöfn. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Við syngjum meðal annars lög um dýrin okkar.

Allir eru hjartanlega velkomnir að koma með eða án gæludýra!