Fræðslumorgunn kl. 10.
Nokkrir misskildir kaflar í Íslandssögunni. Bogi Ágústsson, fyrrum fréttastjóri hjá Ríkisútvarpinu, talar.
Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir er forsöngvari. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn.
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní
Á 17. júní er hátíðarmessa kl. 11 með þátttöku rótarymanna. Sóknarprestur þjónar og félagar úr Kammerkórnum syngja. Friðrik Vignir er organisti. Dr. Ólafur Ísleifsson félagi í Rótaryklúbbi Seltjarnarness, flytur hugleiðingu.
Rótarýklúbbur Seltjarnarness býður upp á hátíðarkaffi og meðlæti í safnaðarheimilinu.

