Rýnt í Heimsljós Halldórs Laxness með dr. Gunnari Kristjánssyni

Dr. Gunnar Kristjánsson er okkar helsti sérfræðingur í Heimsljósi Halldórs Laxness. Við munum rýna í Heimsljós með dr. Gunnari Kristjánssyni í þrjú skipti. Um er að ræða þrjú mánudagskvöld i safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju frá kl. 20 til 21.30.

Fyrsta skiptið verður 11. nóvember og hin tvö verða 18. og 25. nóvember.

Hér er einstakt tækifæri til að læra um og kynna sér þetta mikla bókmenntaverk og kristnar áherslur sem þar eru að finna.

Enginn aðgangseyrir, allir velkomnir.