Sunnudagurinn 7. júní – Sjómannadagurinn –

Fræðslumorgunn kl. 10.

Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, fyrrum Hólabiskup, rifjar upp fyrstu árin í starfi safnaðarins á neðri hæð Seltjarnarneskirkju.

Messa  á sjómannadag kl. 11.

Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir prédikar. 40 ár liðin frá því að hún var valin sóknarprestur í almennum prestskosningum í Seltjarnarnesprestakalli. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Halldóra Eyjólfsdóttir er forsöngvari. Myndlistarsýning Soffíu Sigurjónsdóttur opnar á Veggnum galleríi. Veitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn.

Á miðvikudag er þjóðmálafundur kl. 9. Gunnhildur Skaftadóttir segir frá ferð sinni til Suður-Afríku.