Author Archives: Ingimar Sigurðsson

Sunnudagurinn 23. ágúst 2026

Messa kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir er forsöngvari. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir athöfn. Á miðvikudag er þjóðmálafundur og morgunkaffi kl. 9. Árni Helgason, alþingismaður, kemur og spjallar um Evrópumálin.

Ögmundur Jónasson á þjóðmálafundi

Ögmundur Jónasson fyrrv. ráðherra og alþingismaður verður gestur okkar á þjóðmálafundinum á miðvikudaginn 12. ágúst n.k. Hann mun m.a. ræða um Evrópumál og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Fundurinn hefst kl. 9:00. Kaffi og meððððí. Allir velkomnir.

Skráning fermingarbarna 2026-2027

Til væntanlegra nemenda í 8. bekk Valhúsaskóla sem ætla að fermast í Seltjarnarneskirkju vorið 2027 Fermingarfræðslan fyrir veturinn 2026-2027 hefst í september næstkomandi. Formleg skráning í fermingarfræðsluna fer fram  sunnudaginn  28.  júní eftir messu í Seltjarnarneskirkju, en messan hefst kl. 11.  Fermingardagar vorsins eru þrír: Pálmasunnudagur 21. mars  kl. 13.  Sumardagurinn fyrsti 22. apríl kl. […]

Sunnudagurinn 28. júní 2026

Fræðslumorgunn kl. 10 ,,Ég elskaði, ég missti mitt elskulega barn.“ Um ástvinamissi á árnýöld (þær aldir frá lokum miðalda). Þórunn Sigurðardóttir, prófessor emeritus, talar. Léttmessa kl. 11 Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Dr. Douglas Brotchie er organisti. Eygló Rúnarsdóttir er forsöngvari. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu. Eftir messuna fer fram skráning væntanlegra fermingarbarna fyrir veturinn 2026-2027.

Sunnudagurinn 21. júní 2026

Fræðslumorgunn kl. 10 Passíur Jóhanns Sebastians Bach. Magnús Lyngdal Magnússon, sagnfræðingur og tónlistargagnrýnandi, talar. Fræðslufundurinn verður í kjallaranum. Messa kl. 11 Sóknarprestur þjónar. Organisti er dr. Douglas Brotchie. Ólöf Ingólfsdóttir er forsöngvari. Veitingar eftir athöfn verða í kjallaranum. Kaffi og kleinur. Á miðvikudag 24. júní verður þjóðmálafundur í safnaðarheimilinu kl. 9 árdegis. Morgunkaffi og meððí. […]