Jólatónleikar Kammerkórsins miðvikudaginn 3. desember 2025 kl. 20:00

Á efnisskrá eru falleg jólalög eftir bæði íslensk og erlend tónskáld. Kórinn flytur jafnframt fimm þekkta aðventu- og jólasálma í útsetningum J. S. Bachs, þar sem sungið verður eitt erindi á þýsku með hverjum sálmi.


Á undan hverjum sálmi hljómar sálmforleikur fyrir orgel úr „Orgelbüchlein“ („Litlu orgelbókinni“), sem Bach samdi á starfsárum sínum sem hirðorgelleikari í Weimar.

Um er að ræða einstakan viðburð, því þessi samsetning kór- og orgeltónlistar Bachs hefur ekki heyrst hér á landi í um fjóra áratugi.

Stjórnandi og orgelleikari er Friðrik Vignir Stefánsson.

Aðgangseyrir er 3.000 kr og eru veitingar eftir tónleika innifaldar.