The Festival og Nine Lessons with Carols.
Ensku jólasvöngvarnir hafa tíðkast innan Ensku biskupakirkjunnar í meira en 100 ár. Þeir voru fyrst haldnir í King‘s College í Cambridge.
Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Organisti er dr. Douglas Brotchie.
Eliza Reid, fyrrverandi forsetafrú mun lesa einn lesturinn.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur og prestur Ensku biskupakirkjunnar á Íslandi flytur bæn og blessun.
Sendiráð Bretlands og Bandaríkjanna taka þátt í þessari athöfn.
Kaffiveitingar í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju eftir athöfn.

