Á leiðinni heim er dagskrá alla virka daga föstunnar kl. 17.30

Þetta starf hefst á öskudag og verður alla virka daga föstunnar, eða til 1. apríl, í alls 31 skipti.
Hugmyndin er sú að fólk geti komið við í kirkjunni á leiðinni heim úr vinnu og hlustað á einn passíusálm eftir sr. Hallgrím.


Seltirningar og fleiri munu lesa einn passíusálm á hverjum virkum degi föstunnar ásamt því að það verður signing og bæn í uppafi stundar og eftir sálminn Faðir vor og blessun.


Þessar stundir verða frá kl. 17.30 til 17.45.

Þann 18. febrúar mun Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri, lesa fyrsta passíusálminn.